Humar ummm...
Halló elskurnar mínar!
Ætlaði bara aðeins að blogga til að segja ykkur að ég er að fara að elda humar ummm... Elísabet ætlar að koma í mat til mín og við ætlum að eta á okkur gat!! Við ætlum bara að vera rólegar í kveld, ekkert djamm sko! Þetta djammerí er farið að verða ansi þreytt, það var reyndar mjög gaman síðustu helgi og það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki en nú er komin tími til að slaka á og bara njóta þess að vera til... án áfengis... allavega tímabundið... ;)
Í fyrsta skipti, síðan ég opnaði bloggið held ég, ætla ég að hafa þetta stutt. Ég hef alltaf svo mikið að segja að ég bara get ekki stoppað en ég ætla að láta þetta bara duga og koma svo með lengri pistil næst! Síðasti pistill var svo ógó leiðinlegur, eitthvað klukk dæmi, að ég lofa að næsti verður súper dúber áhugaverður og kannski sýni ég ykkur mynd af nýju stígvélunum mínum, þau eru geggjuð... ;)
Ég er svo mikið fífl! Ég held að ég sé búin að skrifa pistil um að ætla ekki að skrifa pistil!! En nú stopparðu Jórunn mín, þú ert að fara að elda humar, átt von á gest í mat og átt eftir að fara í sturtu, þetta gengur ekki svona!! Ok þá...
Over and out... með sól í hjarta og humar í vaskinum!!
Klukki klukk...
Jæja, þá er víst komin tími til að svara klukkinu!! Fyrir þá sem ekki vita hvað það er að vera klukkaður skal ég reyna að útskýra það aðeins. Það er víst eitthvað fyrirbæri að tröllríða bloggheiminum sem kallast klukk. Þá þarf maður að svara nokkrum spurningum um sjálfan sig og klukka svo einhverja aðra sem þurfa að gera slíkt hið sama. Þetta er svona eins og að vera í eltingarleik og þegar þú nærð einhverjum (klukkar) þá breytist sá aðili í þann sem eltir. En jæja here goes...
4 störf sem ég hef unnið um ævina:- Flokkstjóri hjá Sandgerðisbæ
- Innritun hjá IGS
- Verslunarstjóri á Subway Hringbraut Rvk.
- Þjónustustúlka á Hard Rock Café Rvk.
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Crossroads (Britney Spears rules... hehe)
- Police Academy myndirnar (alltaf jafn fyndnar)
- 50 first dates (æðisleg mynd)
- Nýi stíllinn keisarans (besta teiknimynd ever)
4 staðir sem ég hef búið á:
- Sandgerði (hef nú reyndar búið á 6 stöðum þar)
- Reykjavík (hef búið á 4 stöðum þar)
- Kaupmannahöfn (hef búið á 3 stöðum hér)
- Þýskaland (aðeins 1 staður en það var líka alveg nóg sko..)
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Friends
- Simpsons
- Futurama
- Charmed
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Luxembourg
- Mallorca
- Krít
- Kanaríeyjar
4 heimasíður sem ég skoða reglulega (fyrir utan blogg):
- Fronter (skólasíðan)
- Mbl (til að skoða stjörnuspánna, er ekki mikil fréttamanneskja)
- Heimabankinn (aldrei neitt skemmtilegt þar)
- w3schools (kennir manni ýmislegt um veraldarvefinn)
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
- Plokkfiskur
- Pylsur og kartöflumús
- Camembert
- Humar
4 bækur sem ég les oft:
- Pússluspilið
- Maðurinn með ljáinn
- Hann var kallaður þetta
- Ofsótt
4 staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:
- Heima hjá mömmu minni og fjölskyldu
- Á sólarströnd
- undir sæng að kúra
- Að syngja og dansa á einhverjum brjáluðum skemmtistað
4 bloggarar sem ég klukka:
- Sibba díva
- Jón Hnefill
- Eva Dís
- Ása Sóley
Þá er þetta komið gott fólk! Þetta er sko ekki það skemmtilegasta sem ég geri en maður verður víst að svara þegar maður er klukkaður, annars er leikurinn ónýtur. En þetta er svona álíka leiðinlegt og keðjubréfin sem ég er alltaf að fá send á mailið mitt! Maður er svo hjátrúarfullur eitthvað að maður þorir ekki að slíta þessu en þessi bréf verða alltaf verri og verri. Fyrst var sagt að ég fengi margra ára ógæfu ef ég svaraði ekki og myndi aldrei finna sanna ást en núna er það bara dauði og læti ef ég sendi þetta ekki til 15 annarra á næstu 3 mín!! Ég er alveg komin með nóg af þessu keðjudóti... please ekki senda mér keðjubréf... ÉG HATA ÞAU!! En þetta klukki klukk er nú ósköp meinlaust og ég get svo sem alveg tekið þátt í því... annars lagið!
Over and out... hikk klukki klukk!
Gaman, gaman... ;)
Jæja góðir hálsar!
Nú er maður loksins komin aftur með nýjan pistil! Ég gerði mér enga grein fyrir því að það væru svona margir að fylgjast með mér og mínum skrifum. Ég hélt að ég væri þokkalega búin að drekkja ykkur röfli og ætlaði því aðeins að leyfa ykkur að anda... en maður má nú ekki láta aðdáendur sína bíða of lengi... ;)
Það er nú reyndar aldrei neitt nýtt að frétta af mér, svo allt sem ég skrifa er nú óttalegt ruglumbull og þvæla en það er samt ágætt að koma þessu ruglumbulli frá sér svo maður drukkni ekki í eigin skrítnu hugsunum heldur deili þeim með öðrum... ;)
Aldrei þessu vant var ég að djamma um síðustu helgi!!! Ég hélt svona íslenskt "Evróvisjon" partí heima hjá mér til að styðja Silvíu Nótt. Hún er nú algjör snilld þessi stelpa og alveg ótrúlegt að hún skuli alltaf halda andlitinu þegar hún er í hlutverki Silvíu Nóttar (Nætur). Ég hef nú reyndar heyrt gagnrýnisraddir tengdar því að hún taki þátt í "Evróvisjon" en við látum þær bara sem vind um eyru þjóta!! Persónan Silvía Nótt SKAL taka þátt í þessari keppni og vonandi vinna hana... ;)
Eftir keppnina var slegið upp svaka dansiballi í litlu íbúðinni minni, húsgögnin færð til og allt sett í botn! Þetta var alveg ógó skemmtó (nýyrði í blogg- og msn geiranum)... ;) Við dönsuðum reyndar svo mikið að þegar ég vaknaði daginn eftir þá komst ég að því að ég er ekki 16 ára lengur heldur næstum 26 ára. Líkami minn var allur í lamasessi og ég er enn að jafna mig í dag!! Nú er bara að taka sér tak og koma sér í dansform fyrir aðalkeppnina í maí, því þá verður tekið á því og dansað alla nóttina... ;)
Ég var á msn í gær að spjalla við mann og annan og náði loksins í skottið á henni Ásu vinkonu minni. Ég hef ekki heyrt í henni í háa herrans tíð af því að nú er hún svo upptekin, komin með tvo yndislega gullmola sem hún þarf að hugsa um. Hún gaf sér nú smá stund frá dagsins amstri til að setjast niður og spjalla við mig og það var mjög notalegt. Eftir að hafa spjallað um daginn og veginn kom upp sú umræða að hún væri að verða veik. Ég spurði hvað væri að og hún sagðist vera að fá einhverja flensu og hélt kannski að það væri fuglaflensan. Ég brást harkalega við og sagði að hún mætti sko ekki fíflast með svona lagað, fuglaflensan væri sko ekkert djók. En þá sagði hún sallaróleg að hún væri ekki að tala um "The Fuglaflensa" heldur "Furðufuglaflensuna" sem væri að ganga!! Það er víst svona pest sem þú færð eftir að hafa verið innan um of marga furðufugla og vitleysinga!! Ég hugsa að ég sé alveg búin að fá tífaldan skammt af "Furðufuglaflensunni" undanfarin ár, enda búin að umgangast margan furðufuglinn í gegnum tíðina! Eða kannski er ég smitberinn, öðru nafni hinn alræmdi furðufugl hehehehehe.... aldrei að vita sko... ;)
Held að ég láti þetta ruglumbull mitt duga í bili en ætla samt að enda á að nota tækifærið til þakka mömmu og ömmu og afa fyrir sendinguna á sunnudaginn var. Fékk fullt af skemmtilegu dóti og þar á meðal humar ummmmm.... ;)
Over and out my fanclub...
Ps. Nýr texti við "Til hamingju Ísland" væntanlegur fljótlega... Jorunn Shark, glowing in the dark... Stay tuned!! ;)
Skóli, skóli og aftur skóli...
Góðan og blessaðan daginn gott fólk!!
Ég er hérna í pásu í skólanum og ákvað að skrifa nokkur orð á meðan! Það er nú reyndar ósköp lítið að frétta af mér en maður má nú ekki láta sér leiðast... ;)
Ég er búin að vera svooo dugleg síðustu daga að það er bara alveg ótrúlegt! Á þriðjudagsnóttina (á frekar erfitt með svefn) ákvað ég að vera ÝKT dugleg og taka skápana hjá mér í gegn, eitthvað sem átti að gerast síðustu helgi en bara hreinlega gleymdist (ég reyndar reyndi að hemja rykhnoðrana mína þá en þeir urðu hálf fúlir út í mig og komu bara sterkari inn aftur!!) Svo núna er allt svo skipulagt og fínt í mínum skápum og skúffum og ég er ekki í bráðri lífshættu þegar ég opna (en rykhnoðrarnir gætu hinsvegar verið í bardagahug hmm... ;))!!!
Í gær fór ég svo með skó í viðgerð vegna þess að hælarnir voru bara hreinlega ónýtir eftir litlu kubbastéttarnar á Strikinu! Alveg ómögulegt að labba Strikið í háhæluðum skóm, maður er alltaf eins og fífl og festir hælana á milli kubbana í hverju skrefi. Um daginn var ég t.d. á leiðinni í afmæli sem haldið var á bar á Strikinu og var sko algjör gella, kom gangandi upp (niður) strikið með hárið flagsandi og dillaði mér alveg svakalega... og hvað haldiði að hafi gerst?? Ég festi helv... hælinn á milli og varð eins og asni að snúa við og sækja skóinn... og eins og pen dama þá stakk ég fætinum í skóinn og ætlaði að losa hann þannig en hann haggaðist ekki!! Ég varð því að leggja gellu "lúkkinu" og beygja mig niður og toga af öllum kröftum þar til hann losnaði. Ég var því ekki mikil gella það sem eftir var kvöldsins því þegar ég labbaði heyrðist svona plaff, klikk, plaff, klikk og það er ekkert rosalega sexý... ;)
Eftir skóviðgerðaleiðangurinn kíkti ég með Birgittu og Elísabetu á kaffihús. Þetta átti bara að vera stutt stopp, smá heitt kakó af því að okkur var svo kalt en endaði með því að þær skvísur drukku 8 bjóra og ég 3 kók og við vorum þarna inni í næstum 6 klukkutíma!!! En þetta var samt mjög notalegt kvöld meðal góðra vina... :)
Jæja, ætli ég verði ekki að fara að gera eitthvað fyrst ég er nú hérna í skólanum! Javascript, actionscript, visualisation, organization, colors, typography eða hvað þetta nú allt saman heitir er efst á baugi þessa vikuna, svaka stuð bara hahhh...
Over and out people... ;)
Jæja hér koma nokkrar myndir...
Ætla að láta hérna einn svaka góðan sem ég fann á netinu fylgja með myndunum:
Þegar Guð hafði skapað Adam og Evu sagði hann: "Nú á ég tvær gjafir eftir handa ykkur, kúnstina að pissa standandi og..." Hana vil ég fá!" hrópaði Adam. Eva kinkaði kolli játandi og Adam fékk gjöfina... Adam skríkti af kæti, hljóp um allan lystigarðinn, pissaði á trén upp og niður, þaut niður á strönd og pissaði allskyns munstur í sandinn...
Guð og Eva fylgdust kímin með hamingju Adams og Eva spurði: "hver er hin gjöfin?" Guð svaraði: "Heilinn, Eva... heilinn!!"
Þessi er alveg svakalegur.... hahahahahahahahhahahahaha..... ekta karlmaður... fljótfærnin alveg að drepa þá!!! ;)Jæja, hérna koma nokkrar myndir síðan síðustu helgi!!












Jæja, þá er þetta svona nánast komið! Ég nenni ekki að skrifa hver er hver eða hvað, þið giskið bara... Ég, Jón, Annette, Klara, Elísabet, Alessandro, Thomas og Ditte... ;) Flest allar myndirnar eru teknar í Metro á leiðinni niðrí bæ, við virðumst nefnilega alltaf að gleyma að taka myndir áður en við förum út og þegar við komum niðrí bæ, þetta verður því bara að duga í bili!!!
Over and out... stay cool!!!
Ps. endum hérna á einum kossi... GÓÐA NÓTT ALLIR SAMAN.... ;)

Letikast...
Jæja gott fólk, þá er helgin á enda og við tekur ný vinnuvika. Ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. En maður verður víst bara að bíta í það súra epli og taka nýrri viku fagnandi örmum... ;)
Ég kíkti út með nokkrum vinum í gær og kom heim klukkan 8 í morgun. Þetta var bara alveg ágætt, mikið drukkið af herra Carlsberg og vinum!! Dagurinn í dag er því frekar svona dapur og inniheldur nettan hausverk og létta magakveisu... ;)
En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ætla að leggjast undir teppi og horfa á einhverja geggjaða stelpumynd og borða ís!! Skrifa meira á morgun þegar heilsan er orðin góð... ;)
(Hang)over and out...
Ps. reyni kannski að láta einhverjar myndir fljóta með næsta pistli!!
Þvottadagur...
Góðan og blessaðan daginn allir saman!
Það er yndislegt vetrarveður hérna hjá mér í Kaupmannahöfn, sólin skín en það er frekar kalt. Í dag er víst laugardagur og ég var búin að lofa sjálfri mér að taka íbúðina í gegn og það ætla ég að reyna að gera. Þarf að þrífa, þvo þvott og taka til í skápunum hjá mér áður en allt hreinlega flæðir út!! En ég tek bara eitt skref í einu og fyrsta skrefið er að hanga aðeins fyrir framan tölvuna og fá mér svo kannski smá hádegismat, hvernig hljómar súkkulaði??
Ég er að spá í að skella mér á djammið í kveld, veit samt ekkert hvað ég ætla að gera! Held að það sé partí hjá Jóni en er samt ekki viss. Svo er auðvitað Íslendingafélagið með Þorrablót í kvöld og svaka ball á eftir. Veit ekkert hvað ég geri en hugsa samt að ég reyni að vera edrú, nenni ekki að eyðileggja morgundaginn með þynnku! Takið eftir að ég sagði REYNA að vera edrú, ætla ekki að lofa neinu svo ekki sé hægt að nota neitt gegn mér... ;)
Jæja, ég held að ég láti þetta bara duga í bili. Veit ekkert hvað ég get sagt ykkur meira. Ætlaði að vera svo spekingsleg og segja svo margt sniðugt en ég er eins og versti karlmaður og get því miður ekki gert tvo hluti í einu!! (Er sko að horfa á sjónvarpið og reyna að skrifa... þeir skilja þetta sem þekkja mig... og allir hinir örugglega líka! ;))
Over and out... and pís on earth!!
Ps. vona að hestamennskan hjá Spangólínu frænku 1, Spangólínu frænku 2 og Sjóaranum mikla hafi gengið vel! Væri sko alveg til í að sjá ykkur brussulínurnar á hestbaki og sérstaklega mæðgurnar með aukahlutina hahahahahahahaha......
Ryk og geggjaðir danir...
Jæja, þá er alveg að koma helgi... aftur! Það er allt í drasli hjá mér og ég nenni ekki neinu. Ég hugsa að ég láti helgina bara fara í að taka til og þvo þvott og þess háttar. Það er samt alveg ótrúlegt að maður virðist alltaf vera að taka til en þetta kemur bara aftur og aftur. Ég er alveg viss um að ryksugur er bara einhver sölubrella og nú liggur einhver snillingur á sólarströnd í Mexíkó og hlær af öllum vitleysingunum sem keypti af honum "ryksugu"!! Ég hugsa að ryksugur blási allt rykið út í loftið og svo smám saman næstu daga leggst það yfir allt aftur... þetta er allavega mín tilgáta. Hvernig stendur annars á því að það kemur ryk svona fljótt aftur eftir þrif?? Nei, ég bara spyr...
Frá ryki yfir í snarvitlausa dani!
Skil ekki dani!! Þeir eru svo ótrúlega seinir að öllu að það er bara lyginni líkast. Fyrir jól fór ég og keypti mér síma í einni af mörgum símabúðum hér. Ég vildi fá að halda mínu gamla símanúmeri og það var ekkert mál... tekur ekki nema 60 daga að færa númer frá "frelsi" yfir í áskrift! 60 DAGA!! Ekki alveg allt í lagi með þetta lið sko. Svo ég fékk mér auðvitað nýtt númer, ég meina 60 DAGAR!!!!!
Í dag fékk ég tilkynningu í póstinum um að vörur sem ég pantaði væru komnar á pósthúsið. Ég settist upp á hjólið og hjólaði á móti vindi í grenjandi rigningu upp á pósthús, sem er slatta langt frá. Þegar þangað kom gekk ég inn og þar var engin að bíða svo ég fór strax að borðinu en konan gat ekki afgreitt mig fyrr en ég var búin að taka miða!! Svo ég þurfti að fara fram á gang aftur og ná mér í miða, líklega út af ósýnilegu röðinni á undan mér!! Svo rétti ég afgreiðsludömunni númerið mitt og pöntunarmiðann og hún fór af stað en snéri svo snöggt við og sagði að ég mætti ekki ná í þetta fyrr en á morgun! Hún gat ekki afgreitt þetta af því að smáa letrið sagði 10. febrúar!! Afhverju voru þau að henda þessu inn um bréfalúguna hjá mér í dag ef ég má ekki sækja þetta fyrr en á morgun?? Nei, ég bara spyr...
Og til að kóróna gjörsamlega mína skoðun á þessum snarvitlausu dönum, þá eru þeir núna búnir að stofna mínu lífi og annara í hættu með því að storka örlögunum og ögra aðeins Múslimum og þeirra vinum með því að setja skopmynd af trúartákni þeirra í blöðin!! Vita danir ekki að þetta lið er EKKI eins og við og er snargeggjað í hausnum?? Nei, ég bara spyr...
Jæja, nóg komið af röfli í bili! Ég er sko ekki alltaf svona neikvæð ;) Eða finnst ykkur það? Nei, ég bara spyr....
He he he he... over and out people and good night!
jæja loksins komin með blogg...
Loksins, loksins búin að læra á þetta bloggdót og ætla að byrja að blogga eins og allir þeir svölustu :)