Gaman, gaman... ;)
Jæja góðir hálsar!Nú er maður loksins komin aftur með nýjan pistil! Ég gerði mér enga grein fyrir því að það væru svona margir að fylgjast með mér og mínum skrifum. Ég hélt að ég væri þokkalega búin að drekkja ykkur röfli og ætlaði því aðeins að leyfa ykkur að anda... en maður má nú ekki láta aðdáendur sína bíða of lengi... ;)
Það er nú reyndar aldrei neitt nýtt að frétta af mér, svo allt sem ég skrifa er nú óttalegt ruglumbull og þvæla en það er samt ágætt að koma þessu ruglumbulli frá sér svo maður drukkni ekki í eigin skrítnu hugsunum heldur deili þeim með öðrum... ;)
Aldrei þessu vant var ég að djamma um síðustu helgi!!! Ég hélt svona íslenskt "Evróvisjon" partí heima hjá mér til að styðja Silvíu Nótt. Hún er nú algjör snilld þessi stelpa og alveg ótrúlegt að hún skuli alltaf halda andlitinu þegar hún er í hlutverki Silvíu Nóttar (Nætur). Ég hef nú reyndar heyrt gagnrýnisraddir tengdar því að hún taki þátt í "Evróvisjon" en við látum þær bara sem vind um eyru þjóta!! Persónan Silvía Nótt SKAL taka þátt í þessari keppni og vonandi vinna hana... ;)
Eftir keppnina var slegið upp svaka dansiballi í litlu íbúðinni minni, húsgögnin færð til og allt sett í botn! Þetta var alveg ógó skemmtó (nýyrði í blogg- og msn geiranum)... ;) Við dönsuðum reyndar svo mikið að þegar ég vaknaði daginn eftir þá komst ég að því að ég er ekki 16 ára lengur heldur næstum 26 ára. Líkami minn var allur í lamasessi og ég er enn að jafna mig í dag!! Nú er bara að taka sér tak og koma sér í dansform fyrir aðalkeppnina í maí, því þá verður tekið á því og dansað alla nóttina... ;)
Ég var á msn í gær að spjalla við mann og annan og náði loksins í skottið á henni Ásu vinkonu minni. Ég hef ekki heyrt í henni í háa herrans tíð af því að nú er hún svo upptekin, komin með tvo yndislega gullmola sem hún þarf að hugsa um. Hún gaf sér nú smá stund frá dagsins amstri til að setjast niður og spjalla við mig og það var mjög notalegt. Eftir að hafa spjallað um daginn og veginn kom upp sú umræða að hún væri að verða veik. Ég spurði hvað væri að og hún sagðist vera að fá einhverja flensu og hélt kannski að það væri fuglaflensan. Ég brást harkalega við og sagði að hún mætti sko ekki fíflast með svona lagað, fuglaflensan væri sko ekkert djók. En þá sagði hún sallaróleg að hún væri ekki að tala um "The Fuglaflensa" heldur "Furðufuglaflensuna" sem væri að ganga!! Það er víst svona pest sem þú færð eftir að hafa verið innan um of marga furðufugla og vitleysinga!! Ég hugsa að ég sé alveg búin að fá tífaldan skammt af "Furðufuglaflensunni" undanfarin ár, enda búin að umgangast margan furðufuglinn í gegnum tíðina! Eða kannski er ég smitberinn, öðru nafni hinn alræmdi furðufugl hehehehehe.... aldrei að vita sko... ;)
Held að ég láti þetta ruglumbull mitt duga í bili en ætla samt að enda á að nota tækifærið til þakka mömmu og ömmu og afa fyrir sendinguna á sunnudaginn var. Fékk fullt af skemmtilegu dóti og þar á meðal humar ummmmm.... ;)
Over and out my fanclub...
Ps. Nýr texti við "Til hamingju Ísland" væntanlegur fljótlega... Jorunn Shark, glowing in the dark... Stay tuned!! ;)
