Letikast...
Jæja gott fólk, þá er helgin á enda og við tekur ný vinnuvika. Ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. En maður verður víst bara að bíta í það súra epli og taka nýrri viku fagnandi örmum... ;)Ég kíkti út með nokkrum vinum í gær og kom heim klukkan 8 í morgun. Þetta var bara alveg ágætt, mikið drukkið af herra Carlsberg og vinum!! Dagurinn í dag er því frekar svona dapur og inniheldur nettan hausverk og létta magakveisu... ;)
En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ætla að leggjast undir teppi og horfa á einhverja geggjaða stelpumynd og borða ís!! Skrifa meira á morgun þegar heilsan er orðin góð... ;)
(Hang)over and out...
Ps. reyni kannski að láta einhverjar myndir fljóta með næsta pistli!!
