Ryk og geggjaðir danir...
Jæja, þá er alveg að koma helgi... aftur! Það er allt í drasli hjá mér og ég nenni ekki neinu. Ég hugsa að ég láti helgina bara fara í að taka til og þvo þvott og þess háttar. Það er samt alveg ótrúlegt að maður virðist alltaf vera að taka til en þetta kemur bara aftur og aftur. Ég er alveg viss um að ryksugur er bara einhver sölubrella og nú liggur einhver snillingur á sólarströnd í Mexíkó og hlær af öllum vitleysingunum sem keypti af honum "ryksugu"!! Ég hugsa að ryksugur blási allt rykið út í loftið og svo smám saman næstu daga leggst það yfir allt aftur... þetta er allavega mín tilgáta. Hvernig stendur annars á því að það kemur ryk svona fljótt aftur eftir þrif?? Nei, ég bara spyr...Frá ryki yfir í snarvitlausa dani!
Skil ekki dani!! Þeir eru svo ótrúlega seinir að öllu að það er bara lyginni líkast. Fyrir jól fór ég og keypti mér síma í einni af mörgum símabúðum hér. Ég vildi fá að halda mínu gamla símanúmeri og það var ekkert mál... tekur ekki nema 60 daga að færa númer frá "frelsi" yfir í áskrift! 60 DAGA!! Ekki alveg allt í lagi með þetta lið sko. Svo ég fékk mér auðvitað nýtt númer, ég meina 60 DAGAR!!!!!
Í dag fékk ég tilkynningu í póstinum um að vörur sem ég pantaði væru komnar á pósthúsið. Ég settist upp á hjólið og hjólaði á móti vindi í grenjandi rigningu upp á pósthús, sem er slatta langt frá. Þegar þangað kom gekk ég inn og þar var engin að bíða svo ég fór strax að borðinu en konan gat ekki afgreitt mig fyrr en ég var búin að taka miða!! Svo ég þurfti að fara fram á gang aftur og ná mér í miða, líklega út af ósýnilegu röðinni á undan mér!! Svo rétti ég afgreiðsludömunni númerið mitt og pöntunarmiðann og hún fór af stað en snéri svo snöggt við og sagði að ég mætti ekki ná í þetta fyrr en á morgun! Hún gat ekki afgreitt þetta af því að smáa letrið sagði 10. febrúar!! Afhverju voru þau að henda þessu inn um bréfalúguna hjá mér í dag ef ég má ekki sækja þetta fyrr en á morgun?? Nei, ég bara spyr...
Og til að kóróna gjörsamlega mína skoðun á þessum snarvitlausu dönum, þá eru þeir núna búnir að stofna mínu lífi og annara í hættu með því að storka örlögunum og ögra aðeins Múslimum og þeirra vinum með því að setja skopmynd af trúartákni þeirra í blöðin!! Vita danir ekki að þetta lið er EKKI eins og við og er snargeggjað í hausnum?? Nei, ég bara spyr...
Jæja, nóg komið af röfli í bili! Ég er sko ekki alltaf svona neikvæð ;) Eða finnst ykkur það? Nei, ég bara spyr....
He he he he... over and out people and good night!
