fimmtudagur, mars 23, 2006

Vikupistillinn...

Jæja gott fólk!

Þá er víst komið að vikupistlinum mínum en líkt og síðast er ég alveg blankó og veit ekkert um hvað ég á að skrifa! En yfirleitt næ ég nú alveg að bulla mig út úr því... :)

Þessi vika er búin að vera alveg svona skítsæmileg hjá mér. Við erum að byrja að læra eitthvað nýtt í skólanum sem heitir php og ég er ekki svona alveg að ná því sem kennarinn er að segja en það kemur vonandi, ég hef alla helgina til að lesa!!

Ég var ógó dugleg á mánudaginn og fór í ræktina í annað skiptið á þessu ári, þvílíkt hvað maður er orðin duglegur, farin að fara í ræktina alveg annan hvern mánuð hah.... En núna gengur sko engin leti, maður er að breytast í alveg hræðilega hlussu, já ég segi það og skrifa, HLUSSU!! Jón var loksins að klára að gera videó frá því á Friday barnum í skólanum í desember (karaoke kvöld) og þar sá ég bara svart á hvítu (var reyndar í lit en...) að ég er algjör hlunkur og hlussa og nú er komin tími til að gera eitthvað í málunum!! Það er reyndar alltaf sagt að myndavélin bæti á mann nokkrum kílóum en mér finnst MJÖG hæpið að hún hafi bara bætt þeim á mig, ekki nema henni sé illa við mig og hafi ákveðið að bæta öllum þeim kílóum sem áttu að fara á aðra á mig!! Það er náttlega alveg spurning sko... en held samt að svona líti ég bara út og það er sko ekki gott... :(

Eins og alltaf eru vikurnar hérna alveg hræðilega fljótar að líða, það er alltaf helgi og svo er helgin alltaf búin og þá er komin leiðindar mánudagur en svo er aftur komin helgi en svo kemur alltaf aftur mánudagur... æi þið vitið um hvað ég er að tala... :) En ég var samt hálfgerður hrakfallabálkur í vikunni!! Á mánudaginn var ég að flýta mér svoooo mikið að elda svo að ég gæti farið með Elísabetu og stelpunum í keilu að ég sullaði sykri út um allt eldhús og á heita helluna og allt!! Það var alveg hræðileg lykt hérna inni hjá mér, bráðin sykur og fínheit! Svo ég fór ekkert í keilu, fór bara í fýlu í staðinn...
Í gær hélt svo hrakfallasagan áfram og ég hrundi niður tröppurnar hérna heima hjá mér. Ég var hálfnuð niður stigann þegar ég rann á helv... nælonsokkabuxunum sem ég var í og endaði á neðsta stigaþrepinu. Svo nú er ég marin og blá og bólgin frá rist og upp á sköflung og svo teygðist alveg rækilega á hendinni minni þegar ég reyndi að ná haldi! Það versta við þetta allt saman er að það var engin hérna til að hugga mig... *væl*... ekki það að ég hafi vælt sko en ég hefði örugglega gert það ef einhver hefði verið hérna til þess að hugga mig! Það er ekkert gaman að væla einn, það er langbest að væla þegar einhver getur huggað mann og kysst á bágtið, annað er bara tilgangslaust því að maður fær enga athygli, ekki satt??? :)

Jæja, best að fara að punta sig og gera sig sætan af því að í kvöld er ég að fara í fansý smansý kokteilpartí til Birgittu... jeihh... jibbí... jes... :) Mér finnst svoo gaman að fara í partí og skil bara ekki afhverju ég geri það ekki oftar... ;) Ég segi ykkur frá því öllu saman á morgun, já eða hinn, já eða allavega í næstu viku híhí... ;)

Over and out... mér er svo illt í löppinni... helv... #$%&... nælonsokkabuxur!

Ps. Hérna er nýja myndbandið með Silvíu Nótt, Congratulation... Flottir búningar hjá stelpunni og eins og alltaf, flott lag... ;) http://kvikmynd.is/myndband.asp?id=2078

fimmtudagur, mars 16, 2006

Blogga blogga...

Helló helló!!

Fyndið hvað þetta bloggdæmi byrjaði vel en svo er eins og maður bara geti ekki skrifað meira. Mér finnst eins og ég sé búin að segja ykkur allt og nú er ég bara með ritstíflu, hugmyndasnauð. Ég ætlaði nú alltaf að nota þetta blogg til að deila með ykkur mínum hugsunum og draumum en mínar hugsanir eru mjög oft frekar skrítnar og hálfgert kaos þar á ferð og mínir draumar eru yfirleitt bara draumórar og þeir fljóta langt yfir eðlileg mörk... :)

Síðasta vika hjá mér er búin að vera frekar róleg. Ég var fram á nótt á mánudaginn að klára verkefni sem ég átti að skila daginn eftir svo nú er ég gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við. Ég sef á daginn og vaki á nóttunni, voðalega gaman!! En ég fékk samt jákvæðar fréttir í byrjun vikunnar. Ég fékk mína fyrstu einkunn á þessari önn... ég fékk 10... reyndar af 13 en yfirleitt er ekki gefið 13 hérna. Svo þetta er svona eins og 9 eða 9.5 sem er alveg þokkalegt og við vorum hæst í okkar bekk og ég held að það hafi enginn annar hópur fengið 10... ;)

Síðustu vikur og mánuði er ég búin að vera að hugsa og hugsa um lífið og tilveruna og það sem framundan er og einnig það sem liðið er. Það eru ýmsir kaflar í mínu lífi sem ætti að vera lokið en ég virðist alltaf flétta aftur til baka til að glugga í þá aftur. Ég vil breyta þessum köflum, endurskrifa þá svo að ég fái minn eigin hamingjusama og góða endi. En það er víst ekki hægt, það er víst engin "spóla til baka" takki á lífinu. En þessi staða er líka svo óþægileg þegar þú ert ekki einu sinni viss um að þó að þú gætir breytt öllu og fengið það sem þú vildir hvort þú yrðir þá hamingjusamur. Hjartað virðist oft vilja fara aðrar leiðir en samviskan og rökhyggjan.

Djúpt í sál okkar, að baki sársaukanum,
að baki allra truflana lífsins, er víðfeðm kyrrð,
veraldarhaf rósemdar, sem ekkert fær truflað,
ómælisfriður náttúrunnar sjálfrar,
ofar öllum skilningi.
Það sem við leitum sem ákafast að,
hér og þar, alltaf ofar og utar,
það finnum við loks í sjálfum okkur.


Kannski er eitthvað point í þessu! Kannski verðum við að læra að þekkja okkur sjálf og elska, áður en við getum lært að elska einhvern annan.

En jæja, ég held að ég sé orðin alltof væmin núna. Þetta er örugglega ekki það sem fólk vill lesa um, mínar stórfurðulegu hugsanir. Þið viljið örugglega frekar heyra einhverjar krassandi fréttir úr mínu daglega lífi... en mér þykir leitt að valda ykkur vonbrigðum, ég lifi engu glamúr lífi hérna úti og er bara mannleg. Ég hef samt reynt að krydda svolítið og ýkja þegar ég segi frá svo að líf mitt hljómi súber dúber skemmtilegt. Ekki það að líf mitt sé leiðinlegt, engan veginn sko. Mér líður vel hérna úti og er alltaf og endalaust að reyna að lifa lífinu lifandi og gera eitthvað nýtt og skemmtilegt... ;)

Over and out... ein sem er búin að horfa of mikið á sápuóperur!!

Ps. ekki halda að ég sé í einhverju þunglyndi hérna, ég er bara að reyna að nota bloggið til að koma skipulagi á mínar hugsanir og þessa vikuna snúast þær um þetta... :)

föstudagur, mars 10, 2006

Jæja þá í þetta sinn...

Góðan daginn allir saman!

Ég vill byrja á að biðjast innilegrar afsökunar á töfum á nýjum pistli. Ég veit að það eru allir búnir að bíða súper dúber spenntir hehe... svakalegt sjálfsálit hjá manni alltaf hreint!! En þannig er mál með vexti að það er búið að vera alveg kolvitlaust að gera hjá mér og þegar heim er komið eftir langan dag þá hef ég bara hreinlega ekki nennt að kveikja á tölvunni og byrja að skrifa, það er miklu skemmtilegra bara að leggjast uppí sófa með popp og kók (og kannski smá súkkulaði)!!

Síðasta helgi endaði eiginlega öll með djammi og svo sófakúri daginn eftir. Ég fór á Fridaybarinn í skólanum á föstudagskvöldið og það var bara alveg þokkalegt stuð þar sko. Á laugardeginum ætluðum við Elísabet sko ekkert að gera en það endaði með því að Birgitta náði að draga okkur í keilu. Við náðum að drattast úr sófanum, skella á okkur meiki og henda okkur í föt. Við fórum í keilu um tíuleytið og vorum þar til tólf. Þetta var svona diskókeila með bar og alles, svaka flott. Ég er náttlega algjör auli þegar kemur að öllu sem flokkast undir íþróttir. Ég fékk lang lægstu stiginn, 250 stig á meðan allir hinir voru með svona 500 stig... ég var alveg að brillera með að hitta í rennuna. Innan um keilurnar var alltaf ein bleik keila og þegar hún lenti fremst þá var tilkynnt í kallkerfinu á hvaða braut hún væri og hver ætti að skjóta og ef fólk náði fellu þá fékk sú braut frí skot á línuna. Við biðum allt kvöldið eftir að fá bleika fremst og guess what?? Ég fékk hana, ég sem var langverst í okkar liði. Gaurinn tilkynnti öllum að Jórunn á braut 3 væri að fara að skjóta og allir fylgdust spenntir með. Ég spýtti í lófana og rauk af stað og hitti líkt og fyrr beint í rennuna fínu. En hann var svo sætur í sér þessi tilkynningargaur að hann gaf mér annan séns. Svo ég rauk aftur af stað og náði að hitta allar nema eina!!! Það fékk engin neitt að drekka en ég er samt alveg asskoti stolt af mér... :)
Eftir að hafa gert mig að fífli í keilu þá skelltum við okkur niður í bæ á Samsbar til að syngja í karaoke. Við tókum nokkur vel valin lög og stóðum okkur með stökustu prýði. Meira að segja Elísabet tók lagið og ég er alveg þvílíkt stolt af henni, hún stóð sig mjög vel og ég er nokkuð viss um að fyrst hún er byrjuð þá getur hún ekki hætt!! Pétur hennar Birgittu ætlaði líka að syngja og valdi lagið 500 miles en þegar lagið byrjaði þá var þetta ekki lagið sem við héldum að þetta væri, "I would walk 500 miles and I would...", heldur einhver kántrísálmur eða eitthvað, "walk 500 miles for my lord..." En hann tók þetta samt alveg ágætlega þrátt fyrir að þekkja lagið ekki vel!! Það var sem sagt mikið hlegið og drukkið og við skemmtum okkur alveg konunglega... :)

Á mánudaginn var svo langur skóladagur, ekki gaman. Á þriðjudaginn fór ég náttlega aftur í skólann en eftir skóla fórum við á opið hús í Álaborgar Háskóla hér í Kaupmannahöfn. Þar var verið að kynna Mediology sem er nám sem ég get tekið eftir að hafa klárað diplómanámið í Multimedia design. Við fengum að sjá allt sem nemendurnir þar eru að gera og það var alveg svakalega flott. Þetta nám var upphaflega búið til svo að margmiðlunarhönnuðir gætu bætt við sig frekari menntun og það vantaði eitthvað til að brúa bilið á milli margmiðlunarhönnunar og Computer Science, sem er ekki alveg á sama sviði. Í mínu námi núna þurfum við að hugsa og hanna innan ákveðins ramma, reyna að selja ákveðnar hugmyndir og þess háttar, en þarna fáum við loks tækifæri til að vera hugmyndarík og hugsa út fyrir ramman. Þarna er okkur kennt hvernig mannshugurinn virkar og svo hvernig tölvan virkar og hvernig við getum látið tölvuna virka eins og heilann. Það voru alveg ótrúlegustu hlutir sem fólk var að gera þarna t.d. teiknimyndir en í stað þess að nota kóða til að láta persónurnar hreyfa sig þá nota þau skynjara sem sem settir eru á fólk og þegar fólkið hreyfir sig þá hreyfist persónan á skjánum líka. Voru líka með allskyns óhefðbundin tónlistarforrit sem þau höfðu búið til. Svo er líka kennt hvernig hægt er að búa til svona sýndarveruleika (Virtual Reality) dæmi. Ég varð alveg heilluð af þessu öllu saman og er að fara í þetta nám á næsta ári þegar ég er búin með Multimedia designer. Þetta nám tekur 2 ár og þá er ég komin með B.s. gráðu í Mediology en svo get ég bætt 2 árum við í viðbót og sérhæft mig í einhverju ákveðnu, t.d. leikjum, hljóði, sýndarveruleika eða einhverju og þá er ég komin með master í Mediology. Þetta er samt miklu erfiðara nám heldur en ég er í núna og alveg hellings stærðfræði sem ég þarf að læra en ég hugsa að ég geti þetta alveg. Það eru samt aðallega strákar sem velja þetta nám og flestar stelpurnar í mínum bekk ætla frekar í Media og Art design eða eitthvað svoleiðis af því að þeim finnst þetta of erfitt. En ég VEIT að ég get þetta alveg og pæliði í því hvað þetta yrði skemmtilegt híhí... ;)

En jæja nú er ég búin að segja ykkur alla sólarsöguna af mér síðustu vikuna eða svona nánast, nennti nú ekki að skrifa alveg allt. Og nú er víst komin helgi aftur, það er alltaf helgi eða væri það allavega ef þessir virku dagar væru ekki að þvælast fyrir alltaf hreint. Ég er ekkert búin að ákveða hvað verður brallað um þessa helgi en það verður örugglega eitthvað skemmtilegt. Þarf nú reyndar að þvo þvott og gera einhverja svoleiðis leiðinlega hluti en ætla sko ekki að eyða allri helginni í það!!

En þá er bara að kveðja í bili og lofa að láta ekki líða svona langt á milli skrifa... :)

BLESS ELSKURNAR MÍNAR OG ÓGESSLEGA GÓÐA HELGI... LOVE YA ALL!!

Over and out... ég veit að ég get allt!!

þriðjudagur, mars 07, 2006

Bla bla bla

NENNI EKKI AÐ BLOGGA Í KVÖLD... ER ÓGÓ ÞREYTT OG BÚIÐ AÐ VERA BRJÁLAÐ AÐ GERA SÍÐUSTU DAGA!!!

LOFA AÐ BLOGGA Á MORGUN OG ÞÁ VERÐUR SKO BLAÐRAÐ OG BLAÐRAÐ OG BLAÐRAÐ!

OVER AND OUT... TALK TO YA ALL LATER!!

mánudagur, mars 06, 2006

Eitthvað að bila hérna...

Jæja, ég ætla að prófa að skrifa hérna og athuga hvort að það virkar. Það virðist vera einhver bilun í kerfinu eða eitthvað, get ekki séð bloggið mitt!! Ætla sko ekkert að skrifa of mikið ef þetta virkar svo ekki... ;)

Over and out... talk to ya all later!

miðvikudagur, mars 01, 2006

Stövlerne...

Helló helló!!

Jæja, loksins koma myndir af mine fansy smansy stövler! Þau eru ógó ógó flott en líklega ekki það sem þið bjuggust við hehe... ;)
















Finnst ykkur þau ekki flott?? Þetta eru sko flottustu stígvél í heimi!! En ég veit að þetta var ekki alveg það sem þið bjuggust við hah... þið hafið líklega haldið að ég hafi verið að kaupa mér einhver brjáluð gellu leðurstígvél. En það eru bara ungu stelpurnar á Istedgade sem ganga í svoleiðis hehehehehehe... ya all know what I´m talking about hehehe... ;) En svona grínlaust þá er búið að snjóa hérna og rigna til skiptis í margar vikur og ég er alltaf hundvot og rennandi blaut svo að ég skellti mér í búð og keypti mér vaðstígvél! Og þar sem ég er með pínulitlar fætur (Hobbit) þá fór ég beint í barnadeildina og þar var sko svakalegt úrval af dýrindis vaðstígvélum. Valið stóð á milli þessara eða Turtles en þau voru svo víð um öklann að ég varð að taka þessi. Gerði sko kjarakaup, aðeins 39 dkk eða ca. 400 ísk., geri aðrir betur... ;)

En látum myndirnar tala sínu máli og ég ætla að kveðja í bili.

These boots are made for walking... lalalala.... lalala.... I´m gonna walk all over you... híhí...

Over and out... with love from me and my boots!!

Cheap Online Pharmacies.
Online Pharmacy