föstudagur, mars 10, 2006

Jæja þá í þetta sinn...

Góðan daginn allir saman!

Ég vill byrja á að biðjast innilegrar afsökunar á töfum á nýjum pistli. Ég veit að það eru allir búnir að bíða súper dúber spenntir hehe... svakalegt sjálfsálit hjá manni alltaf hreint!! En þannig er mál með vexti að það er búið að vera alveg kolvitlaust að gera hjá mér og þegar heim er komið eftir langan dag þá hef ég bara hreinlega ekki nennt að kveikja á tölvunni og byrja að skrifa, það er miklu skemmtilegra bara að leggjast uppí sófa með popp og kók (og kannski smá súkkulaði)!!

Síðasta helgi endaði eiginlega öll með djammi og svo sófakúri daginn eftir. Ég fór á Fridaybarinn í skólanum á föstudagskvöldið og það var bara alveg þokkalegt stuð þar sko. Á laugardeginum ætluðum við Elísabet sko ekkert að gera en það endaði með því að Birgitta náði að draga okkur í keilu. Við náðum að drattast úr sófanum, skella á okkur meiki og henda okkur í föt. Við fórum í keilu um tíuleytið og vorum þar til tólf. Þetta var svona diskókeila með bar og alles, svaka flott. Ég er náttlega algjör auli þegar kemur að öllu sem flokkast undir íþróttir. Ég fékk lang lægstu stiginn, 250 stig á meðan allir hinir voru með svona 500 stig... ég var alveg að brillera með að hitta í rennuna. Innan um keilurnar var alltaf ein bleik keila og þegar hún lenti fremst þá var tilkynnt í kallkerfinu á hvaða braut hún væri og hver ætti að skjóta og ef fólk náði fellu þá fékk sú braut frí skot á línuna. Við biðum allt kvöldið eftir að fá bleika fremst og guess what?? Ég fékk hana, ég sem var langverst í okkar liði. Gaurinn tilkynnti öllum að Jórunn á braut 3 væri að fara að skjóta og allir fylgdust spenntir með. Ég spýtti í lófana og rauk af stað og hitti líkt og fyrr beint í rennuna fínu. En hann var svo sætur í sér þessi tilkynningargaur að hann gaf mér annan séns. Svo ég rauk aftur af stað og náði að hitta allar nema eina!!! Það fékk engin neitt að drekka en ég er samt alveg asskoti stolt af mér... :)
Eftir að hafa gert mig að fífli í keilu þá skelltum við okkur niður í bæ á Samsbar til að syngja í karaoke. Við tókum nokkur vel valin lög og stóðum okkur með stökustu prýði. Meira að segja Elísabet tók lagið og ég er alveg þvílíkt stolt af henni, hún stóð sig mjög vel og ég er nokkuð viss um að fyrst hún er byrjuð þá getur hún ekki hætt!! Pétur hennar Birgittu ætlaði líka að syngja og valdi lagið 500 miles en þegar lagið byrjaði þá var þetta ekki lagið sem við héldum að þetta væri, "I would walk 500 miles and I would...", heldur einhver kántrísálmur eða eitthvað, "walk 500 miles for my lord..." En hann tók þetta samt alveg ágætlega þrátt fyrir að þekkja lagið ekki vel!! Það var sem sagt mikið hlegið og drukkið og við skemmtum okkur alveg konunglega... :)

Á mánudaginn var svo langur skóladagur, ekki gaman. Á þriðjudaginn fór ég náttlega aftur í skólann en eftir skóla fórum við á opið hús í Álaborgar Háskóla hér í Kaupmannahöfn. Þar var verið að kynna Mediology sem er nám sem ég get tekið eftir að hafa klárað diplómanámið í Multimedia design. Við fengum að sjá allt sem nemendurnir þar eru að gera og það var alveg svakalega flott. Þetta nám var upphaflega búið til svo að margmiðlunarhönnuðir gætu bætt við sig frekari menntun og það vantaði eitthvað til að brúa bilið á milli margmiðlunarhönnunar og Computer Science, sem er ekki alveg á sama sviði. Í mínu námi núna þurfum við að hugsa og hanna innan ákveðins ramma, reyna að selja ákveðnar hugmyndir og þess háttar, en þarna fáum við loks tækifæri til að vera hugmyndarík og hugsa út fyrir ramman. Þarna er okkur kennt hvernig mannshugurinn virkar og svo hvernig tölvan virkar og hvernig við getum látið tölvuna virka eins og heilann. Það voru alveg ótrúlegustu hlutir sem fólk var að gera þarna t.d. teiknimyndir en í stað þess að nota kóða til að láta persónurnar hreyfa sig þá nota þau skynjara sem sem settir eru á fólk og þegar fólkið hreyfir sig þá hreyfist persónan á skjánum líka. Voru líka með allskyns óhefðbundin tónlistarforrit sem þau höfðu búið til. Svo er líka kennt hvernig hægt er að búa til svona sýndarveruleika (Virtual Reality) dæmi. Ég varð alveg heilluð af þessu öllu saman og er að fara í þetta nám á næsta ári þegar ég er búin með Multimedia designer. Þetta nám tekur 2 ár og þá er ég komin með B.s. gráðu í Mediology en svo get ég bætt 2 árum við í viðbót og sérhæft mig í einhverju ákveðnu, t.d. leikjum, hljóði, sýndarveruleika eða einhverju og þá er ég komin með master í Mediology. Þetta er samt miklu erfiðara nám heldur en ég er í núna og alveg hellings stærðfræði sem ég þarf að læra en ég hugsa að ég geti þetta alveg. Það eru samt aðallega strákar sem velja þetta nám og flestar stelpurnar í mínum bekk ætla frekar í Media og Art design eða eitthvað svoleiðis af því að þeim finnst þetta of erfitt. En ég VEIT að ég get þetta alveg og pæliði í því hvað þetta yrði skemmtilegt híhí... ;)

En jæja nú er ég búin að segja ykkur alla sólarsöguna af mér síðustu vikuna eða svona nánast, nennti nú ekki að skrifa alveg allt. Og nú er víst komin helgi aftur, það er alltaf helgi eða væri það allavega ef þessir virku dagar væru ekki að þvælast fyrir alltaf hreint. Ég er ekkert búin að ákveða hvað verður brallað um þessa helgi en það verður örugglega eitthvað skemmtilegt. Þarf nú reyndar að þvo þvott og gera einhverja svoleiðis leiðinlega hluti en ætla sko ekki að eyða allri helginni í það!!

En þá er bara að kveðja í bili og lofa að láta ekki líða svona langt á milli skrifa... :)

BLESS ELSKURNAR MÍNAR OG ÓGESSLEGA GÓÐA HELGI... LOVE YA ALL!!

Over and out... ég veit að ég get allt!!

Cheap Online Pharmacies.
Online Pharmacy