fimmtudagur, mars 23, 2006

Vikupistillinn...

Jæja gott fólk!

Þá er víst komið að vikupistlinum mínum en líkt og síðast er ég alveg blankó og veit ekkert um hvað ég á að skrifa! En yfirleitt næ ég nú alveg að bulla mig út úr því... :)

Þessi vika er búin að vera alveg svona skítsæmileg hjá mér. Við erum að byrja að læra eitthvað nýtt í skólanum sem heitir php og ég er ekki svona alveg að ná því sem kennarinn er að segja en það kemur vonandi, ég hef alla helgina til að lesa!!

Ég var ógó dugleg á mánudaginn og fór í ræktina í annað skiptið á þessu ári, þvílíkt hvað maður er orðin duglegur, farin að fara í ræktina alveg annan hvern mánuð hah.... En núna gengur sko engin leti, maður er að breytast í alveg hræðilega hlussu, já ég segi það og skrifa, HLUSSU!! Jón var loksins að klára að gera videó frá því á Friday barnum í skólanum í desember (karaoke kvöld) og þar sá ég bara svart á hvítu (var reyndar í lit en...) að ég er algjör hlunkur og hlussa og nú er komin tími til að gera eitthvað í málunum!! Það er reyndar alltaf sagt að myndavélin bæti á mann nokkrum kílóum en mér finnst MJÖG hæpið að hún hafi bara bætt þeim á mig, ekki nema henni sé illa við mig og hafi ákveðið að bæta öllum þeim kílóum sem áttu að fara á aðra á mig!! Það er náttlega alveg spurning sko... en held samt að svona líti ég bara út og það er sko ekki gott... :(

Eins og alltaf eru vikurnar hérna alveg hræðilega fljótar að líða, það er alltaf helgi og svo er helgin alltaf búin og þá er komin leiðindar mánudagur en svo er aftur komin helgi en svo kemur alltaf aftur mánudagur... æi þið vitið um hvað ég er að tala... :) En ég var samt hálfgerður hrakfallabálkur í vikunni!! Á mánudaginn var ég að flýta mér svoooo mikið að elda svo að ég gæti farið með Elísabetu og stelpunum í keilu að ég sullaði sykri út um allt eldhús og á heita helluna og allt!! Það var alveg hræðileg lykt hérna inni hjá mér, bráðin sykur og fínheit! Svo ég fór ekkert í keilu, fór bara í fýlu í staðinn...
Í gær hélt svo hrakfallasagan áfram og ég hrundi niður tröppurnar hérna heima hjá mér. Ég var hálfnuð niður stigann þegar ég rann á helv... nælonsokkabuxunum sem ég var í og endaði á neðsta stigaþrepinu. Svo nú er ég marin og blá og bólgin frá rist og upp á sköflung og svo teygðist alveg rækilega á hendinni minni þegar ég reyndi að ná haldi! Það versta við þetta allt saman er að það var engin hérna til að hugga mig... *væl*... ekki það að ég hafi vælt sko en ég hefði örugglega gert það ef einhver hefði verið hérna til þess að hugga mig! Það er ekkert gaman að væla einn, það er langbest að væla þegar einhver getur huggað mann og kysst á bágtið, annað er bara tilgangslaust því að maður fær enga athygli, ekki satt??? :)

Jæja, best að fara að punta sig og gera sig sætan af því að í kvöld er ég að fara í fansý smansý kokteilpartí til Birgittu... jeihh... jibbí... jes... :) Mér finnst svoo gaman að fara í partí og skil bara ekki afhverju ég geri það ekki oftar... ;) Ég segi ykkur frá því öllu saman á morgun, já eða hinn, já eða allavega í næstu viku híhí... ;)

Over and out... mér er svo illt í löppinni... helv... #$%&... nælonsokkabuxur!

Ps. Hérna er nýja myndbandið með Silvíu Nótt, Congratulation... Flottir búningar hjá stelpunni og eins og alltaf, flott lag... ;) http://kvikmynd.is/myndband.asp?id=2078

Cheap Online Pharmacies.
Online Pharmacy