Styttist í heimkomu...
Halló gott fólk!Jæja, það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði síðast. Það er búið að vera alveg nóg að gera hjá manni. Núna styttist nefnilega í að maður komi heim til Íslands og þá fer allt á fullt!! Ég þarf að skila stóru verkefni á föstudaginn, þarf að kaupa föt fyrir ferminguna og svo þarf að þvo þvott og þrífa og ég veit ekki hvað og hvað sko! En þetta er svona allt að mjakast, ég er með forgangsröðina alveg í lagi... ég er búin að versla föt, fara í klippingu og taka síðasta djamm hér fyrir páska en allt þetta leiðinlega er eftir ojjj... nenni ekki að læra og nenni ekki að þrífa... :)
En vitiði hvað??? Oj þetta er svo ógeðslegt ójj barasta jakk sko bara! Ég sat hérna núna áðan í makindum að skrifa bloggið mitt og sá þá einhverja hreyfingu hjá stiganum hérna... þá kom hlaupandi alveg ógeðslega stór könguló, hún var jafn stór og mús, ég get svo svarið fyrir það! Ég stökk upp og hljóp inn á bað en ég á ekkert pöddusprey svo að ég tók bara hársprey og spreyjaði á hana e
En jæja ég nenni ekki að skrifa meira í bili og efast um að það komi annar pistill fyrr en ég verð komin til Íslands, hef nefnilega aldrei bloggað á Íslandi og verð því aðeins að prófa það!
Over and out... könguló, könguló vísaðu mér á berjamó... ójj barasta!!
