Ég á afmæli í dag jeij...
Halló elsku dúllurnar mínar!Jæja, þá er maður loksins sestur fyrir framan tölvuna í þeim tilgangi að skrifa smá pistil í tilefni dagsins. Í dag er sá merki dagur 12. júlí. Þann dag árið 1980 fæddist hún ég!!! Það er erfitt að trúa því að það séu komin 26 ár síðan ég leit heiminn fyrst augum, mér finnst eins og það hafi nú bara gerst í gær, man það svo asskoti vel nefnilega... ;)
Það eru víst komnir margir mánuðir síðan ég bloggaði síðast (ég hélt að það væri ekki alveg svo langt síðan sko)! Ég ætla ekki að segja ykkur nákvæmlega allt sem gerst hefur síðan síðast en ætla samt að telja fram svona það allra mikilvægasta!
- Ég er formlega búin með fyrsta árið mitt í margmiðlunarhönnun... æi til hamingju elskan mín... já þakka þér kærlega fyrir!
- Búin með 2 dönskunámskeið... oh du er en meget dygtig pige skat... tak skal du have!
- Komin með vinnu, er að vinna á veitingastað í Fields sem heitir The American... Frábært og hvað, talarðu þá dönsku þar eða?... ja svona bara þegar mér hentar...
- Kíkti á Hróarskeldu eitt kvöld, síðasta kvöldið... og hvað, hvernig var, var þetta ekki geggjað eða?... Jú, þetta var svo sem ágætt, allir voru samt orðnir heldur þreyttir og sjúskaðir og þar með talið svæðið. Hugsa að ég reyni að fara fyrr næst, já eða hreinlega ekkert að fara bara!!
Jæja, þar með held ég það sé upp talið, hugsa það, er samt ekki alveg viss, vona það samt... æi hef ekki hugmynd!
Nú ætla ég að fara að koma mér í háttinn elskurnar mínar, það er langur afmælisdagur framundan. Þarf að mæta í vinnu klukkan 12 á morgun til 21 annað kvöld en þarf að vakna snemma til að taka á móti öllum afmælispökkunum sem þið senduð mér... þið senduð mér örugglega pakka er það ekki... djók... þarf að setja á eitt stykki köku til að fara með í vinnuna! En svona by the way þá er þetta fyrsti afmælisdagurinn minn á erlendri grund og það er hálf asnalegt verð ég að segja ykkur! Ég vildi óska þess að ég gæti haft alla hérna hjá mér á afmælisdaginn minn!
Góða nótt krúttin mín og eigið þið góðan 12. júlí... lofa að vera duglegri í blogginu í komandi framtíð!
Over and out... þessi sem er rétt nýorðin 26 ára!
