fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Klukki klukk...

Jæja, þá er víst komin tími til að svara klukkinu!! Fyrir þá sem ekki vita hvað það er að vera klukkaður skal ég reyna að útskýra það aðeins. Það er víst eitthvað fyrirbæri að tröllríða bloggheiminum sem kallast klukk. Þá þarf maður að svara nokkrum spurningum um sjálfan sig og klukka svo einhverja aðra sem þurfa að gera slíkt hið sama. Þetta er svona eins og að vera í eltingarleik og þegar þú nærð einhverjum (klukkar) þá breytist sá aðili í þann sem eltir. En jæja here goes...

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
  • Flokkstjóri hjá Sandgerðisbæ
  • Innritun hjá IGS
  • Verslunarstjóri á Subway Hringbraut Rvk.
  • Þjónustustúlka á Hard Rock Café Rvk.

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  • Crossroads (Britney Spears rules... hehe)
  • Police Academy myndirnar (alltaf jafn fyndnar)
  • 50 first dates (æðisleg mynd)
  • Nýi stíllinn keisarans (besta teiknimynd ever)

4 staðir sem ég hef búið á:

  • Sandgerði (hef nú reyndar búið á 6 stöðum þar)
  • Reykjavík (hef búið á 4 stöðum þar)
  • Kaupmannahöfn (hef búið á 3 stöðum hér)
  • Þýskaland (aðeins 1 staður en það var líka alveg nóg sko..)

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Friends
  • Simpsons
  • Futurama
  • Charmed

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Luxembourg
  • Mallorca
  • Krít
  • Kanaríeyjar

4 heimasíður sem ég skoða reglulega (fyrir utan blogg):

  • Fronter (skólasíðan)
  • Mbl (til að skoða stjörnuspánna, er ekki mikil fréttamanneskja)
  • Heimabankinn (aldrei neitt skemmtilegt þar)
  • w3schools (kennir manni ýmislegt um veraldarvefinn)

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

  • Plokkfiskur
  • Pylsur og kartöflumús
  • Camembert
  • Humar

4 bækur sem ég les oft:

  • Pússluspilið
  • Maðurinn með ljáinn
  • Hann var kallaður þetta
  • Ofsótt

4 staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:

  • Heima hjá mömmu minni og fjölskyldu
  • Á sólarströnd
  • undir sæng að kúra
  • Að syngja og dansa á einhverjum brjáluðum skemmtistað

4 bloggarar sem ég klukka:

  • Sibba díva
  • Jón Hnefill
  • Eva Dís
  • Ása Sóley

Þá er þetta komið gott fólk! Þetta er sko ekki það skemmtilegasta sem ég geri en maður verður víst að svara þegar maður er klukkaður, annars er leikurinn ónýtur. En þetta er svona álíka leiðinlegt og keðjubréfin sem ég er alltaf að fá send á mailið mitt! Maður er svo hjátrúarfullur eitthvað að maður þorir ekki að slíta þessu en þessi bréf verða alltaf verri og verri. Fyrst var sagt að ég fengi margra ára ógæfu ef ég svaraði ekki og myndi aldrei finna sanna ást en núna er það bara dauði og læti ef ég sendi þetta ekki til 15 annarra á næstu 3 mín!! Ég er alveg komin með nóg af þessu keðjudóti... please ekki senda mér keðjubréf... ÉG HATA ÞAU!! En þetta klukki klukk er nú ósköp meinlaust og ég get svo sem alveg tekið þátt í því... annars lagið!

Over and out... hikk klukki klukk!

Cheap Online Pharmacies.
Online Pharmacy